Vörumiðlun
Vörumiðlun

Fréttir

Líklegt að dragi fljótlega til tíðinda við eldstöðina
Hraunrennsli við varnargarða austan Grindavíkur um síðustu helgi. VF/Hilmar Bragi
Þriðjudagur 30. apríl 2024 kl. 15:04

Líklegt að dragi fljótlega til tíðinda við eldstöðina

Þrýstingur byggist upp

Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og rennur hraun til suðurs frá gígnum líkt og undanfarið. Suðurhluti hraunbreiðunnar heldur áfram að þykkna þangað sem hraun rennur í lokuðum rásum. Á laugardaginn, 27. apríl, fór lítil hrauntunga yfir varnargarð austan Grindavíkur. Ekki hefur meira hraun farið yfir varnargarðinn síðan þá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Myndmælingateymi Náttúrufræðistofnunar (NÍ) og Landmælinga Íslands (LMÍ) hefur unnið úr gervitunglamyndum og gögnum síðan 25. apríl. Flatarmál hraunbreiðunnar sem myndast hefur í eldgosinu er nú 6,16 km2 og er nánast óbreytt á milli mælinga. Rúmmál og þykkt hraunbreiðunnar heldur hins vegar áfram að aukast og er rúmmálið nú 34 ± 1.9 milljón m3 og meðalþykkt hraunbreiðunnar 5,5 ± 0,3 m.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Út frá þessum niðurstöðum er áætlað meðalhraunflæði í eldgosinu á milli 15. og 25. apríl 0,9 ± 0,4 m3/s. Í fyrri mælingum á meðalhraunflæði fyrir tímabilið frá 3. til 15. apríl var það metið um 3 til 4 m3/s.

Lava_time_series_april_15_25_compare

Myndatexti: Meðfylgjandi kort sýnir breytingar á þykkt hraunbreiðunnar á milli 15. og 25. apríl.

Enn mælist landris við Svartsengi en þó eru vísbendingar um að hægt hafi á því síðustu daga. Á sama tíma hefur gosórói sýnt smávægilega aukningu og smáskjálftavirkni aukist tímabundið á Sundhnúksgígaröðinni. Þó svo vísbendingar séu um að það hægi á landrisinu sýna líkanreikningar að kvikusöfnun undir Svartsengi haldir áfram á svipuðum hraða og áður. Heildarrúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi síðan gos hófst er metið yfir 10 milljón rúmmetrar. Það að hægi á landrisinu en að kvika flæði áfram inn í kvikuhólfið bendir til þess að þrýstingur sé að byggjast þar upp.

Mælingar og líkanútreikningar benda til að talsverð óvissa sé um framhaldið en líklegt er að það dragi fljótlega til tíðinda. Haldi kvikusöfnun áfram eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega frekar en að það lognist út af. Út frá nýjustu mælingum er þó erfitt að fullyrða um hvor sviðsmyndanna hér að neðan sé líklegri

  • Nýjar gossprungur opnast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells og/eða núverandi gosop stækkar vegna skyndilegrar aukningu í hraunflæði sem gæti orðið sambærilegt við upphafsfasa síðustu eldgosa á svæðinu. Það gæti gerst með mjög stuttum eða engum fyrirvara.
  • Einnig er mögulegt að kvikuflæði úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í virka gíginn á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast jafnt og þétt þar til að jafnvægi verði á milli innstreymi kviku inn í kvikuhólfið og útstreymis þaðan og uppá yfirborð.

Graph_inflation_mogi_is29042024

Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undirSvartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. 

Gasdreifingarspá

Veðurspáin í dag er norðlæg átt (þriðjudag) og gasmengun berst til suðurs og gæti orðið mengun í og nær Grindavík. Lægir í nótt og þá gæti mengun safnast nálægt gosstöðunum. Snýst í vestanátt á morgun (miðvikudag) og suðvestanátt síðdegis. Gasmengun berst til austurs í fyrstu og gæti orðið við Suðuströndina en síðar til norðurs og norðausturs og gæti mengun orðið á Höfuðborgarsvæðinu, Vogum og Vatnsleysuströndinni. Hægt er að fylgjast með gasdreifingarspá hér.

Hættumat uppfært

Á vísindafundi Veðurstofunnar í morgun var hættumat yfirfarið. Þær breytingar eru á hættumatinu að hætta vegna gjósku hefur verið lækkuð úr töluverðri hættu í litla á svæði 1 og 6. Þessi breyting er gerð vegna þess að það hefur ekki verið mikil gjóska að sleppa út í andrúmsloftið. Hættan á svæði 4 (Grindavík) hefur verið aukin úr töluverðri hættu í mikla vegna hraunflæðis, þar sem hrauntungan hefur verið að stækka, þó hægt sé, innan svæðisins síðustu daga. Þetta hefur í för með sér að heildarhætta á svæði 4 fer úr töluverðri (appelsínugult) í mikla (rautt). Þar að auki eru auknar líkur á að það dragi fljótlega til tíðinda á svæðinu í kringum Sundhnúka og er metið líklegra en áður að hraun geti runnið hratt til suðurs.

Haettusvaedi_VI_30april_2024

(Smelltu hér til að sjá kortið stærra)