Public deli
Public deli

Íþróttir

Þróttur Vogum Lengjubikarmeistarar B-deildar karla 2024
Þróttarar fagna Lengjubikarmeistaratitlinum. Myndir af Facebook-síðu Þróttar
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
þriðjudaginn 30. apríl 2024 kl. 08:25

Þróttur Vogum Lengjubikarmeistarar B-deildar karla 2024

Þróttur varð Lengjubikarmeistari B-deildar karla í gær eftir góðan sigur á Haukum í úrslitaleik mótsins.

Þróttarar lentu tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik (8' og 31') en Ásgeir Marteinsson lagaði stöðuna fyrir hálfleik (36').

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ásgeir var aftur á ferðinni á 52 mínútu og allt var jafnt fram á síðustu mínútu en þá tryggði Jóhannes Karl Bárðarson Þrótti titilinn með góðu skoti utan teigs Hauka og boltinn söng í netinu (90').

Lokatölur 3:2 fyrir Þrótti í flottum endurkomusigri.

Bikarinn að fara á loft.