Fréttir | 20. janúar 2010 | 17:10:19
Video: Þrumur og eldingar yfir Suðurnesjum

Mikið eldingaveður gekk yfir Suðurnesin nú síðdegis  með háværum drunum og miklum ljósagangi. Að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands myndaðist eldingaveðrið í kjölfar kuldaskila sem gengu yfir landið í nótt. Óstöðugt loft fylgdi á eftir þeim með þéttum skúragörðum.  Dynjandi haglél fylgdi á eftir skilunum.

Kvikmyndatökumaður Víkurfrétta, Hilmar Bragi Bárðarson, náði þessum myndum á tökuvél þegar veðrið gekk yfir.