Landsfréttir | 2. febrúar 2010 | 09:32:35
Frostlaust samfellt í 21 dag
Frostlaust var í Reykjavík í samfellt 21 dag í janúar síðastliðnum og hefur það ekki gerst síðan samfelldar lágmarksmælingar hófust i borginni árið 1920, eða í 90 ár.
Á þessu tímabili hefur það gerst tíu sinnum að frostleysa hefur staðið í meira en tíu daga samfellt, en lengsti hlýindakaflinn til þessa stóð í 17 daga árið 1938, eða fyrir 72 árum, samkvæmt tölum Veðurstofunnar.
Annars var hiti yfir meðallagi á öllu landinu í nýliðnum mánuði, allt að þremur stigum þar sem mest var.
www.visir.is greinir frá þessu
Ljósmynd/elg
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: