Pólitíkin | 8. febrúar 2010 | 13:11:20
Eflum atvinnu - auðgum mannlíf - Gunnar Þórarinsson í 2. sætið
Eflum atvinnu – auðgum mannlíf
Gunnar Þórarinsson gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjanesbæ. Helstu áherslur Gunnars eru:
• Treysta rekstrargrundvöll Reykjanesbæjar með markvissri hagræðingu og aukinni atvinnuuppbyggingu
• Skapa íbúum Reykjanesbæjar skilyrði til vel launaðra starfa hjá traustum fyrirtækjum
• Standa vörð um velferð, menntun og æskulýðsstarf
Gunnar er smiður og viðskiptafræðingur að mennt. Hann hefur ásamt eiginkonu sinni rekið bókhalds- og ráðgjafarfyrirtækið Rekstrarþjónustu G.Þ. frá árinu 1980. Gunnar vann við húsasmíðar á námsárum sínum, starfaði um hríð hjá Verðlagsstofnun og síðan við kennslu og stjórnun í viðskiptagreinum við Fjölbrautarskóla Suðurnesja um árabil. Gunnar hefur látið til sín taka við félagsmál í bæjarfélaginu. Hann var formaður knattspyrnudeildar UMFN frá 1982 til 1987, formaður Íþróttabandalags Suðurnesja frá 1979 til 1984, í stjórn körfuknattleiksdeildar UMFN 1996 til 1998 og formaður Golfklúbbs Suðurnesja frá 2002 til 2008. Gunnar er í sóknarnefnd Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Gunnar er kvæntur Steinunni Sighvatsdóttur, bókara og ráðgjafa. Þau eiga þrjú uppkomin börn: Guðna Þór, endurskoðanda, Reykjanesbæ, kvæntur Guðrúnu Pálsdóttur, hjúkrunarfræðingi og ljósmóður, Sighvat Inga, útibússtjóra Íslandsbanka, Reykjanesbæ, kvæntur Þóru Kristínu Sveinsdóttur, grafískum hönnuði, og Guðlaugu Sunnu, námsráðgjafa við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Reykjanesbæ, gift Bjarna Sæmundssyni, vélsmiði. Barnabörnin eru alls 9.
Til baka |
Prenta frétt |
Senda frétt |
Senda á Facebook