Pólitíkin | 8. febrúar 2010 | 18:27:25
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á morgun hjá XD

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ mun fara fram í félagsheimili sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, Hólagötu 15 í Njarðvík, frá og með 15. Febrúar. Opið verður frá kl. 17.00 til 19.00 virka daga og laugardaginn 20. febrúar frá kl. 13.00 til 15.00. Sérstök athygli er vakin á því að frá og með morgundeginum 9. febrúar verður hægt að greiða utankjörfundaratkvæði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 9.00 - 17.00 alla virka daga fram að prófkjörinu sjálfu þann 27. febrúar.


Alls taka fjórtan frambjóðendur þátt í prófkjörinu að þessu sinni, en kjósa skal sjö frambjóðendur.


Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ sem þar eru búsettir. Einnig er þátttaka heimil stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjanesbæ fyrir lok prófkjör fundar.





Til baka | Prenta frétt | Senda frétt | Senda á Facebook