Mikið um að vera hjá SRFS

Þá eru væntanlegir miðlarnir Guðrún Hjörleifsdóttir (Gúgú), Skúli Lórenzson, Þórunn Maggý og Þórhallur Guðmundsson. Þeir sem vilja tíma endilega hafið samband sem fyrst í 421 3348 og 866 0345. Þeir sem áhuga hafa á að sitja í bænahring hafið samband í sömu símanúmer.
Viljum við enda þetta á eftirfarandi en höfund þekkjum við ekki:
Vertu alltaf hress í huga,
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga,
baggi margra þyngri er.
Vertu sanngjarn, vertu mildur,
vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta,
hjálp í lífsins vanda og þraut.
Treystu því að þér á herðar,
þyngri byrði ei varpað er.
En þú hefur afl að bera,
orka blundar, næg er þér.
Þerraðu kinnar þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.