Þriðjudagur 16. mars 2004 kl. 20:54
Bílvelta á Garðvegi

Bifreið valt á Garðvegi til móts við golfvöllinn í Leiru síðdegis. Ökumaður var einn í bílnum og komst hann af sjálfsdáðum úr bifreiðinni. Hann kenndi eymsla í baki og var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðin sem er af gerðinni Toyota Yaris var mikið skemmd og flutt af vettvangi með dráttarbíl. Ökumaður virðist hafa misst stjórn á bifreiðinni, en annars eru tildrög slyssins óljós.
VF-ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson.