Fréttir

Byko sækir lóðir í Njarðvík
Lóðirnar Fitjabraut 5–7 í Njarðvík.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 12. nóvember 2020 kl. 11:46

Byko sækir lóðir í Njarðvík

Smáragarður ehf. óskar eftir að fá lóðunum að Fitjabraut 5–7 í Njarðvík úthlutað undir byggingarvöruverslun BYKO og mögulega aðra starfsemi sem fellur að þeim rekstri.

„Náist samningar þar um er það ósk Smáragarðs að hefja þróun á reitnum sem fyrst í samráði við skipulagsyfirvöld bæjarins. Reiknað er með sameiningu lóðanna tveggja og byggingarreita,“ segir í umsókninni.

Lóðarumsókn er samþykkt í Umhverfis- og skipulagsráði með fyrirvara um samþykki Reykjaneshafnar og afhendingarskilmála.