Fréttir

Grindin ehf með lægsta tilboð í íþróttamannviki í Grindavík
Fimmtudagur 1. mars 2018 kl. 12:11

Grindin ehf með lægsta tilboð í íþróttamannviki í Grindavík

Grindin ehf  var með lægsta tilboð í uppbyggingu íþróttamannvirkja  í Grindavík en opnun tilboða í verkið fór fram þann 20.febrúar sl. á bæjarskrifstofu Grindavíkur. Tilboð bárust frá Þarfaþing ehf, Munck Ísland, Grindinni ehf og H.H. smíði ehf.

Tæknideild Grindavíkurbæjar lagði til á bæjarstjórnarfundi þann 27.febrúar sl. að ganga frá samningum við lægstbjóðanda, Grindin ehf, tilboð þeirra hljóðaði upp á 518.071.060 kr. og var það 107% af kostnaðaráætlun.

SSS
SSS

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka tilboði Grindarinnar.