Fréttir

Hraunsvík í Grindavík vinsæll áningarstaður
Sunnudagur 14. ágúst 2005 kl. 11:38

Hraunsvík í Grindavík vinsæll áningarstaður

Við Hraunsvík er vinsæll áningarstaður ferðamanna og áður fyrr var Hraunssandur vinsæll sólbaðsstaður þegar leiðin niður á sandinn var greiðfær. Mikill fjöldi varnarliðsmanna kom oft á sandinn og kölluðu þeir staðinn „black beech.“

Í kjölfar jarðskjálfta og breytingar á sandinum er nú ógreiðfært niður á sandinn og varasamt. Í víkinni má sjá fjölskrúðugt fuglalíf og er þar eini staðurinn á Reykjanesinu þar sem hægt er að sjá Lundann en hann verpir í gróður torfum sem eru í Festarfjalli.

Kom þetta fram á vef Grindavíkur