Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

ÍAV hlutskarpast í útboði varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna
Mánudagur 21. september 2020 kl. 21:27

ÍAV hlutskarpast í útboði varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna

— vegna hönnunar og framkvæmda á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Verktakafyrirtækið ÍAV varð hlutskarpast í útboði bandaríska varnarmálaráðuneytisins á hönnun og framkvæmdum vegna flughlaða og tengdra verkefna á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Útboðið var auglýst í júlímánuði 2019 en bandarísk yfirvöld fjármagna alfarið framkvæmdirnar. Að undangengnu forvali var valið úr ákveðnum fjölda íslenskra og bandarískra fyrirtækja sem heimilt var að bjóða í verkið og varð ÍAV hlutskarpast sem fyrr segir. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpar 39 milljónir bandaríkjadala eða 5,3 milljarða króna. Það er undir kostnaðaráætlun bandaríska varnarmálaráðuneytisins en heildarfjárheimild bandaríska þingsins hljóðaði upp á 57 milljónir dala.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Um þrjú verkefni er að ræða. Í fyrsta lagi hönnun og verkframkvæmdir við stækkun á flughlaði innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Í öðru lagi hönnun og verkframkvæmdir fyrir færanlegar gistieiningar. Í þriðja lagi hönnun og verkframkvæmdir vegna færslu á flughlaði fyrir hættulegan farm. Áætluð verklok eru í febrúar 2023.

Auk ofangreindra framkvæmda standa nú yfir eða eru í undirbúningi framkvæmdir sem hafa verið samþykktar á öryggissvæðinu. Þar má nefna breytingar og endurbætur á flugskýli 831, byggingu þvottastöðvar fyrir flugvélar og viðhald og endurbætur á flughlöðum, akstursbrautum og ljósakerfum. Auk þess hafa verið gerðar umfangsmiklar uppfærslur á ratsjárkerfunum og kerfisbúnaði í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Samanlagt er því um að ræða allt að 21,5 milljarða króna á tímabilinu 2018-2023 sem að mestum hluta er fjármagnað af Atlantshafsbandalaginu og bandarískum stjórnvöldum.