Fréttir

Leita eftir nöfnum sem enda á ...dalur og eru til sóma
Leitað er eftir hugmyndum að nöfnum á göturnar í nýju Dalshverfi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 27. júlí 2021 kl. 07:44

Leita eftir nöfnum sem enda á ...dalur og eru til sóma

Nýtt hverfi er í undirbúningi  í Reykjanesbæ og er framhald af Dalshverfi. Eins og gefur að skilja fylgja nýju hverfi margar nýjar götur sem eru nú nafnlausar, en það gengur ekki til lengdar, segir í frétt á heimasíðu bæjarins. Þess vegna vill umhverfis- og skipulagsráð að leita til bæjarbúa um tillögur að nýjum götunöfnum.

Götunöfnin verða níu talsins en einnig þarf nafn á hverfistorgið. En við torgið verður endastöð strætó og leikskóli. Ekkert hámark eða lágmark er á fjölda tillagna og ekki þarf, þó heimilt sé, að tileinka einstökum götum nöfnin.

Skilyrðin eru að ending götunafna sé dalur og nöfnin séu hverfinu til sóma. Óhætt er að vísa í þjóðsögur, ævintýri eða kennileiti og sögu svæðisins. En allar tillögur eru vel þegnar.

Sett verður saman valnefnd sem tekur saman álitlegustu nöfnin og verði fjöldi tillagna í samræmi við væntingar verður endanlegt val ákveðið með íbúakosningu. Veittar verða viðurkenningar fyrir valin nöfn.