Léttskýjað að mestu
Norðaustan 5-10, en 8-13 í nótt og á morgun. Léttskýjað að mestu og hiti 10 til 15 stig að deginum.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 5-10 m/s og skýjað með köflum en norðlægari og léttir til síðdegis. Norðaustan 8-13 og léttskýjað í nótt og á morgun. Hiti 9 til 14 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Minnkandi norðanátt, víð 5-10 m/s, en norðvestan 10-18 á NA-landi fram eftir degi. Skúrir eða jafnvel slydduél norðaustantil en bjartviðri syðra. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast syðst.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-8 en norðvestan 10-15 m/s við norðausturströndina í fyrstu. Skúrir SV-lands, en víða léttskýjað N- og A-lands. Vaxandi suðaustanátt SV-lands síðdegis og fer að rigna um kvöldið. Hiti 5 til 12 stig.
Á föstudag:
Austan og suðaustan 8-15 m/s og rigning í flestum landshlutum. Hiti 6 til 14 stig.
Á laugardag:
Norðan eða norðvestanátt með rigningu um allt land. Hiti 4 til 13 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir vestlæga átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Heldur hlýnandi veður.