Fréttir

Miðvikudagur 22. desember 1999 kl. 20:16

LÍFLEG JÓLAVERSLUN

Jólaverslun hefur verið góð á Suðurnesjum og eru kaupmenn sem blaðið talaði við í gær ánægðir. Að sögn Skúla Skúlasonar hjá Samkaup hf. hefur salan verið jöfn og góð. „Strax eftir miðjan mánuð kom talsverður kippur og síðan hefur þetta verið jafnt og þétt og talsverð aukning frá því í fyrra. Það er mikil sala í kjöti og hamborgarhryggurinn rennur út og síðan er nokkur aukning í fugli, t.d. kalkún. Kristín Kristjánsdóttir í tískuversluninni Kóda segist mjög sátt. Hún hafi borið nokkurn kvíðboga vegna desember núna en það hafi verið að ástæðulausu. „Við erum íviðbetri en í fyrra en svo krossar maður bara putta fyrir síðustu dagana og vonar það besta“. Rúna Óladóttir í Gallery Förðun sagðist vera í skýjunum. Jólaverslun væri búin að vera mjög góð allan mánuðinn. Tíðindi af fleirum eru í svipuðum dúr. Flest allir virðast ánægðir þó samkeppni við útlönd og Reykjavík sé alltaf að aukast. Verslanir eru flestar opnar til kl. 22 í kvöld og annað kvöld en til kl. 23 á Þorláksmessu og svo kl. 9-12 á Aðfangadag.