Föstudagur 22. ágúst 2003 kl. 13:28
Listaverk á hringtorgið

Listaverkinu Ljósatré hefur verið komið upp á Faxatorgi, en í listaverkinu eru ljósaþræðir. Um er að ræða tilraunaverkefni og er listaverkinu ekki endilega ætlaður framtíðarstaður á torginu. Til stendur að listarverkið verði á torginu næstu tvo daga, en verði síðan fjarlægt. Ekki liggur fyrir hvar listaverkið mun standa í framtíðinni.