Fréttir

Mjög erfitt að finna faglært og vant fólk í veitingageiranum
Örn Garðarsson, matreiðslumeistari og eigandi Soho.
Mánudagur 19. október 2015 kl. 17:28

Mjög erfitt að finna faglært og vant fólk í veitingageiranum

„Eftir tvö til þrjú ár verða bara útlendingar að vinna í eldhúsum á Íslandi,“ segir Örn Garðarsson, matreiðslumeistari og eigandi Soho veitingaþjónustu í Reykjanesbæ. „Við auglýstum eftir sérhæfðu starfsfólki til að vinna á kaffihúsinu en enginn slíkur sótti um. Svo fékk ég lista af fólki frá Vinnumálastofnun og á honum var eitthvað um vant fólk. Það var samt erfitt að fá það til að koma í viðtal og byrja að vinna en sem betur fer fékk ég nokkra starfsmenn af þeim lista,“ segir hann. 

Örn segir kollega sína einnig finna fyrir því að erfitt sé að ráða fólk til vinnu. „Þetta er sérstaklega erfitt hérna á Suðurnesjum og reyndar líka á höfuðborgarsvæðinu.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Örn hefur rekið veisluþjónustu frá árinu 2007 og kveðst ekki hafa þurft mikið að auglýsa eftir fólki. „Fólk hefur svona dottið hingað inn. Auðvitað hefur maður stundum auglýst en það kemur mjög sjaldan eitthvað út úr því. Flestir hafa sótt um og það hefur þá hitt þannig á að ég er að leita að fólki.“ 

Þegar ekki tekst að fá reynt fólk til vinnu hefur Örn leyst málin þannig að ráða fólk án reynslu og veitt því þjálfun. „Það er oft það sem við verðum að gera. Maður finnur fljótt hvort fólk hafi áhuga eða ekki og ef ef það hefur áhuga er það hið besta mál.“ Þessa dagana vantar Örn kokk en ætlar ekki að auglýsa eftir honum. „Ég vil frekar bara finna hann sjálfur.“