Miðvikudagur 4. júní 2003 kl. 08:32
Nokkuð bjart í dag

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt, víða 8-13 m/s. Rigning eða súld, en þurrt að mestu norðan- og vestanlands fram eftir degi. Hægari austlæg átt í nótt og á morgun. Bjart veður vestanlands, en líkur á síðdegisskúrum. Annars skýjað að mestu og skúrir víða um land. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast suðvestanlands.