Fréttir

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ á fimmtudag
Mánudagur 7. október 2013 kl. 11:06

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ á fimmtudag

Nýsköpunarþing í Reykjanesbæ – Fullnýting til framtíðar - verður haldið í Andrews leikhúsinu á Ásbrú fimmtudaginn 10. október frá kl. 17:00 – 19:00. Blái Demanturinn (Blue Diamond) hefur í samvinnu við sveitarfélögin á Suðurnesjum, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, KADECO, Hekluna, Sjávarklasann og Jarðvarmaklasann unnið að undirbúningi þingsins. Þá hafa einnig fyrirtæki á borð við HS Orku, HS Veitur, Keilir, Eimskip, ISAVIA, Íslandsstofu, Icelandair og IGS komið að undirbúningi.

Ennfremur hefur Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið átt hlut að máli og mun nýr ráðherra nýsköpunar opna þingið. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur í tengslum við þingið heimsótt fjölda nýsköpunarfyrirtækja á svæðinu, kynnst metnaðarfullum áformum þeirra og þeim tækifærum sem samlegðaráhrifin og margfeldisáhrifin skapa. Annar hluti þingsins er hinn svokallaði Auðlindagarðsdagur sem Íslenski Jarðvarmaklasinn og Blái Demanturinn hafa tengt saman við Nýsköpunarþingið. Í anddyri Andrews verða t.d. settir upp básar í tengslum við Auðlindgarðsdaginn.

Yfirskrift þingsins er FULLNÝTING TIL FRAMTÍÐAR og leitað verður svara við því hvernig byggja megi virðisaukandi starfsemi ofan á frumframleiðslu eða grunnþjónustu og skapa þar með fjölbreyttari og betur launuð störf. Styrkleikarnir sem unnið verður með tengjast orku, iðnaði, sjávarfangi og samgöngumiðju. Fjallað verður um þau tækifæri á Reykjanesi sem byggja á styrkleikum svæðisins og áhersla lögð á 3 stoðir: Auðlindagarðinn, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og tæknibyltingu í flutningum.

Nýsköpunarþing hefur verið haldið á um tveggja ára fresti á svæðinu að frumkvæði Reykjanesbæjar og Bláa Demantsins. Horft er á Reykjanesið sem eitt atvinnusvæði og til þeirra stoða sem samfélagið byggir á. Aðalatriðið á þessu þingi er að sýna þessar risa stoðir í atvinnulífinu á Reykjanesi; hvernig þær virka saman, hvaða gríðarlegu tækifærum við búum yfir og hvernig við förum að því að nýta þau á réttan hátt fyrir svæðið og landið í heild.