Fréttir

Ræða flugvelli og flug að vetrarlagi á Ásbrú
Mánudagur 10. október 2011 kl. 12:10

Ræða flugvelli og flug að vetrarlagi á Ásbrú

Alþjóðleg ráðstefna um flugvelli og flug að vetrarlagi er haldin í dag í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú. Flugakademía Keilis, ásamt Air Transport News, Association of European Airlines, Kadeco, Icelandair og fleiri aðilum, standa fyrir ráðstefnunni.

Veturinn 2010 - 2011 var mörgum flugvöllum í Evrópu lokað skyndilega vegna óvænts vetrarríkis. Flugvallaryfirvöld áttu fullt í fangi með að halda völlum sínum opnum og voru nokkrir stærstu flugvellir Evrópu lokaðir um nokkurra daga skeið. Reynsla okkar sýnir að sumir flugvellir náðu að halda starfsemi gangandi þrátt fyrir válynd veður á meðan aðrir lokuðust og er ætlunin með ráðstefnunni að allir geti lært af aðstæðunum sem þarna sköpuðust rétt fyrir jólin 2010. Fyrirlesarar koma víðs vegar að og m.a. frá Flugmálayfirvöldum Evrópu, Rússlandi, Kína og Bandaríkjunum.