Skýjað í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt 3-8 m/s. Súld eða rigning öðru hverju austanlands og með suðurströndinni, en annars hálfskýjað eða skýjað. Hægviðri og léttir víða til norðan- og austantil í kvöld. Hiti 7 til 17 stig, svalast norðaustantil. Vestlæg átt, 3-8 á morgun og léttskýjað um landið austanvert, en annars skýjað og súld með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast austanlands.