Fréttir

Spáð asahláku
Fimmtudagur 5. janúar 2012 kl. 15:49

Spáð asahláku

Samkvæmt veðurspá á morgun og um helgina má búast við hláku um allt land. Þó svo að lægðirnar gangi frekar hratt yfir og kólni á ný í kjölfar þeirra má búast við töluveðri hláku þessa daga, sérstaklega á sunnudeginum. Talsverður snjór er nú um land allt og víða mikill klaki. Þegar hlýnar og rignir er töluverð hætta á vatnstjónum og mikilvægt að allir séu meðvitaðir um þá hættu og bregðist við henni. segir í tilkynningu frá VÍS.

Mest hætta er á að leki inn í kjallara og frá þökum og svölum. Nauðsynlegt er tryggja að vatn eigi greiða leið.

- Hreinsa frá öllum niðurföllum sem eru nærri húsinu.

- Hreinsa snjó frá anddyrum kjallara og niðurfalla þar.

- Hreinsa frá rennum og niðurföllum þaka, sér í lagi flatra þaka. Það verður þó að gera með mikilli varúð og tryggja öryggi viðkomandi.

- Moka rásir meðfram húsum til að vatn eigi greiða leið burt en safnaðist ekki í tjarnir. Oft bráðnar snjórinn fyrst upp við húsveggi og leitar þá inn í húsið eftir sprungum í veggjum ef það á ekki greiða leið burt.

- Hreinsa allan snjó af svölum og tryggja að niðurfall virki. Ef svo er ekki er hægt að hella heitu vatni ofan í niðurfallið. Ef vatn safnast fyrir á svölum er hætta á að það fari inn með plötuskilum og leki síðan niður á næstu hæð. Slíkt tjón getur verið erfitt að laga því oft kemst talsvert vatn inn í sprunguna.

Ef yfirborðsvatn verður svo mikið í asahláku að venjuleg vel hreinsuð niðurföll hafa ekki undan er það tjón bætt sem stafar af vatni sem streymir inn í hús. Ekki er skylt að bæta öll vatnstjón, til dæmis ekki vegna:

- Vatns sem kemur inn frá þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra eða frá svölum.

- Vatns sem þrýstist upp um frárennslislagnir nema ef leiðslan stíflast eða springur innan húss. Bæjarfélög eða rekstraraðilar fráveitukerfa verða ekki sjálfkrafa ábyrgir fyrir tjóni sem verður vegna þess að kerfið getur skyndilega ekki flutt allt það vatn sem að berst. Til að veitur verði bótaábyrgar þarf að liggja fyrir sök hjá þeim, þ.e að einhverju þekktu viðhaldi hafi ekki verið sinnt, þekktar bilanir ekki verið lagfærðar eða mannleg mistök hafi orðið við rekstur veitunnar.

Jafnframt er mikilvægt að átta sig á því að við þessar aðstæður sem verða um helgina þá verður mun meiri þungi í snjónum. Þá er hætta á að þök og þakkantar gefi sig ef snjór er ekki hreinsaður af þökum og nú þegar hafa slík tjón verið tilkynnt til VÍS.