Stálu skrúfvélum úr vinnuskúr
Innbrot í vinnuskúr í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum var tilkynnt um helgina. Þaðan var stolið fjórum Dewalt skrúfvélum en ekki liggur fyrir hvort sá eða hinir fingralöngu sem þar voru að verki höfðu fleiri muni á brott með sér.