Fréttir

Tilkynni grunsamlegar mannaferðir að næturlagi
Þriðjudagur 25. febrúar 2020 kl. 10:18

Tilkynni grunsamlegar mannaferðir að næturlagi

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum biður íbúa í Reykjanesbæ að tilkynna til Neyðarlínunnar í síma 112, eða hér í gegnum Facebook, verði þeir varir við grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Er það vegna aðila sem hefur verið að fara inn í heimahús og bílskúra á svæðinu.

Íbúar eru sérstaklega hvattir til að læsa öllum hurðum, bifreiðum og geymslum. Ef fólk er með eftirlitsmyndavélakerfi við hús sín þá biðjum við ykkur endilega um að renna í gegn um efnið og kanna hvort að eitthvað sé þar að finna sem getur aðstoðað okkur við leitina.

Meðfylgjandi eru myndir sem náðust úr öryggismyndavélakerfi af aðilanum.