Fréttir

Vætusamt um helgina
Laugardagur 24. september 2011 kl. 09:55

Vætusamt um helgina

Veðurhorfur við Faxaflóa

Austan og norðaustan 5-13 m/s og rigning með köflum. Suðlægari á morgun og vætusamt. Hiti 7 til 12 stig.

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring

Austan og norðaustan 8-13 m/s í dag, en 10-15 á Vestfjarðakjálkanum. Rigning með köflum. Suðlægari á morgun og áfram vætusamt, en úrkomulítið norðanlands. Hiti 7 til 13 stig.