Veikur farþegi frá Amsterdam
Farþegaflugvél lenti á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda farþega. Vélin var á leiðinni frá Amsterdam til Seattle þegar farþeginn veiktist. Viðkomandi var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.