VL: Lokað fyrir ýmsa þjónustu í dag

Íbúar á varnarsvæðinu hafa ekki lengur ADSL tengingar frá og með deginum í dag, marvöruverslun verður lokað, bíla- og varahlutaþjónustu, aðalveitingahúsi og USO Internetkaffi. Þá verður sundlauginni og bókasafninu lokað og beinar sjónvarpsútsendingar heyra sögunni til.
Það er því að verða fátt um fína drætti hvað varðar þjónustu á Vellinum, enda fátt fólk eftir þar uppfrá til að njóta hennar. Þessa dagana munu innan við 500 manns vera á varnarsvæðinu og á það fólk að vera farið af landi brott í lok september, að sögn Friðþórs Eydal.