Keflvíkingar halda til Rúmeníu
Keflvíkingar frá taekwondo-deild félagsins halda til Rúmeníu í dag þar sem þrír þátttakendur munu reyna sig gegn þeim bestu í Evrópu. Evrópumótið er fyrir keppendur á aldrinum 12-14 ára en þeir Keflvíkingar sem taka þátt eru; Ágúst Kristnn Eðvarðsson, Ástrós Brynarsdóttir og Bjarni Júlíus Jónsson.
Með í för er einnig keppandi frá Fram, tveir þjálfarar og þrír foreldrar.
Hérna að neðan má sjá keppendur Keflavíkur að útskýra helstu reglur í taekwondo bardaga.