Íþróttir

Keppni hefst aftur og áhorfendur leyfðir
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 14. apríl 2021 kl. 08:42

Keppni hefst aftur og áhorfendur leyfðir

Það styttist í að keppni hefjist á ný en frá og með morgundeginum verðu æfinga- og keppnisbanni aflétt. Þetta kynnti heilbrigðisráðherra í gær og neðst í fréttinni má sjá helstu breytingar sem verða á samkomutakmörkunum.

Það verður að teljast líklegt að keppni hefjist á ný í næstu viku en mótanefndir sérsambandanna vinna nú að uppfærðri dagskrá og Víkurfréttir munu við fjalla um þær um leið og þær verða tilbúnar.


Almennar fjöldatakmarkanir fara úr tíu í tuttugu manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr tveimur metrum í einn og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í gær og eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar. Gert er ráð fyrir að þær gildi í þrjár vikur.

Helstu breytingar á almennum samkomutakmörkunum:

Í meginatriðum verður um sambærilegar takmarkanir að ræða á samkomum og giltu frá 5. febrúar síðastliðnum. Minnt er á mikilvægi þess að fólk gæti vel að sóttvörnum og fylgi reglum.

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða tuttugu manns.
  • Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annarra skilyrða.
  • Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum heimilar með allt að 100 áhorfendum sem skulu skráðir í sæti. Hámarksfjöldi fullorðinna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu takmörkunum og í skólastarfi.
  • Skíðasvæðum heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis.
  • Sviðlistir, þar með talið kórastarf, heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða.
  • Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
  • Öllum verslunum heimilt að taka á móti fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk tuttugu starfsmanna í sama rými og viðskiptavinir.
  • Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum heimilt að hafa opið með sömu skilyrðum og veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar.
  • Verklegt ökunám og flugnám með kennara heimilt.