Logi áfram hjá Njarðvík
Spilar með uppeldisfélaginu næstu tvö ár
Bakvörðurinn Logi Gunnarsson hefur ákveðið að semja við Njarðvíkinga til næstu tveggja ára. Logi sem er 33 ára lék um árabil erlendis sem atvinnumaður en hann kom til uppeldisfélagsins Njarðvík í fyrra og hjálpaði liðinu í undanúrslit í Dominos deildinni. Reynsluboltinn var í fínu formi í fyrra og skoraði 17 stig að meðaltali í deildinni. Logi náði á dögunum þeim merka áfanga að leika sinn hundraðasta leik fyrir Íslands hönd.