Lúkas í heimsókn hjá Keflavík
Síðastliðinn föstudag heimsótti Lúkas Kostic knattspyrnudeild Keflavíkur en hann er starfsmaður KSÍ og þjálfari U-17 og U-21 landsliða karla. Heimsókn Lúkasar er liður í útbreiðslustarfi KSÍ um hæfileikamótun knattspyrnumanna. Spjallaði Lúkas við yfirþjálfara yngri flokka Keflavíkur, Zoran Daníel Ljubicic, Kristján Guðmundsson, þjálfara meistarflokks karla og Jón Örvar Arason, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, um þær áherslur sem KSÍ leggur upp með við þjálfara landsins.
Aukin áhersla verður lögð á einstaklingsþjálfun og að unnið sé í grunnatriðum tækninnar með boltann. Heimsóknin var í raun tvíþætt því annar megintilgangurinn var að taka Hallgrím Jónasson, leikmann Keflavíkur og U-21 árs landsliðs Íslands, á æfingu. Í æfingahópinn bættust við þeir Baldur, Jónas og Kenneth og fengu þeir allir tilsögn hjá Lúkasi á æfingunni sem stóð yfir í um klukkutíma í Reykjaneshöllinni.
VF-mynd/ Jón Örvar Arason