Þróttarar með góðan sigur fyrir austan
Þróttarar skelltu sér austur á Hornafjörð og unnu stórsigur á Ungmennafélagi Mána í 3. deild karla í knattspyrnu. Vogamenn voru töluvert sterkari og það var gegn gangi leiksins að Mánamenn komust yfir með marki úr vítaspyrnu á 23. mínútu. Emil Daði Símonarson jafnaði leikinn á 35. mín. Vogamenn byrjuðu seinni hálfleikinn með látum. Skoruðu þrjú mörk á fyrstu 15. mínútunum. Mörkin gerðu Páll Guðmundsson, Reynir Þór Valsson og Hinrik Hinriksson. Það var svo Haukur Hinriksson sem skorðaði fimmta mark Þróttara í leiknum og lauk leiknum með öruggum sigri Vogamanna 1-5.
Þróttarar eru í öðru sæti með 16 stig, þremur stigum á eftir KH en fimm stigum á undan Vatnaliljunum sem eru í þriðja sæti.