Flugger
Flugger

Mannlíf

80% barna í elsta hópi Heiðarsels eru læs
Ungir lestrarhestar í Heiðarseli.
Mánudagur 24. febrúar 2014 kl. 09:47

80% barna í elsta hópi Heiðarsels eru læs

- Árangur af sérstakri áherslu á lestur og læsi.

Á leikskólanum Heiðarseli í Reykjanesbæ hefur verið lögð sérstök áhersla á læsi og lestur. Það hefur skilað eftirtektarverðum árangri, þar sem almenna reglan er að við útskrift úr leikskólanum geti meirihluti nemenda í skólahóp lesið einfaldan texta. Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar segist þakka þennan árangur markvissri vinnu kennara í góðri samvinnu við fjölskyldur barnanna.

Gylfi Jón segir að leikskólar í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði starfi eftir sameiginlegri framtíðarsýn þar sem lögð sé sérstök áhersla á læsi og stærðfræði frá fyrsta degi skólagöngu. Það skili sér í því að nemendur komi nú betur undirbúnir undir grunnskólagöngu en áður, og árangur nemenda á Heiðarseli sé gott dæmi um það.

Optical Studio
Optical Studio