Pólskur andi yfir Heiðarskóla
Það var pólskur andi yfir Heiðarskóla í Reykjanesbæ í morgun. Þar fór fram kynning á pólskri menningu og mannlífi. Joanna og Dominika, sem eru nemendur við Myllubakkaskóla í Keflavík fluttu fyrirlestur um Pólland og sýndar voru fallegar myndir frá Póllandi. Anna Lóa Ólafsdóttir frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum flutti erindi og Árni Sigfússon bæjarstjóri ávarpaði gesti, sem voru bæði íslenskir og pólskir.
Auk orða og mynda, var gestum boðið að smakka pólska rétti og kökur. Meðfylgjandi myndir voru teknar á pólsku kynningunni í dag og sýnir efri myndin Árna bæjarstjóra fá sér af hlaðborði pólskra rétta en neðri myndin er af skipuleggjendum dagskrárinnar, sem fengu bækur með myndum af Reykjanesi sem þakklætisvott.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson