Mannlíf

Stúfur hét sá þriðji
Föstudagur 13. desember 2013 kl. 16:35

Stúfur hét sá þriðji

Stúfur var minnsti jólasveinninn eins og nafnið bendir til. Hann nældi sér í pönnur og át agnirnar sem brunnið höfðu fastar. Hann kemur til byggða í nótt.


Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

Jóhannes úr Kötlum

 

Íslensku jólasveinarnir eru jólavættir af tröllakyni. Foreldrar þeirra eru Grýa og Leppalúði og er Jólakötturinn húsdýrið þeirra. Hugmyndir um útlit jólasveinanna hefur verið breytilegt. Í fyrstu voru þeir taldir tröllum líkir, síðar í mannsmynd, en stórir, ljótir og luralegir.

Til að auðvelda íslenskum jólasveinum að muna í hvaða röð og hvaða daga þeir fara á milli húsa og gefa í skó, fengum við til liðs við okkur Huldu og Krumma hjá Raven Design til að nota myndir af jólasveinunum sem þau hafa hannað og selt.