Á myndinni eru Páll Ketilsson og Ásdís Björk Pálmadóttir, eigendur Víkurfrétta.

Útgefandi www.vf.is er:
 
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegi 23
260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000.
Faxnúmer: 421 0020.
Tölvupóstur: pket@vf.is
Kennitala: 710183 0319
VSK nr. 8511

Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 09-17.


VÍKURFRÉTTIR - SUÐURNES

Víkurfréttir komu fyrst út á Suðurnesjum í ágústmánuði 1980. Þá var blaðið gefið út af Pretsmiðjunni Grágás í Keflavík. Núverandi eigandi, Páll Ketilsson, keypti útgáfuna í ársbyrjun 1983 og stofnaði þá fyrirtækið Víkurfréttir ehf. Fljótlega var farið að gefa blaðið út vikulega en um tíma komu Víkurfréttir út tvisvar í viku. Blaðið er borið inn á öll heimili og fyrirtækja á Suðurnesjum og er stærsti
frétta- og auglýsingamiðill svæðisins. Um 7500 eintök af VF er dreift vikulega.


VÍKURFRÉTTIR Á NETINU

Fréttavefurinn www.vf.is opnaði formlega þann 15. júní 1995. Fyrstu árin var efni blaðsins sett inn á vefinn vikulega en um áramótin 1999/2000 var farið að flytja daglegar fréttir á vef blaðsins. Í dag er www.vf.is eini fréttavefur Suðurnesja og sá miðill sem stærstu vefmiðlar landsins treysta á í fréttaflutningi af Suðurnesjum. 
Vefurinn er í mælingu hjá fyrirtækinu Modernus sem mælir aðsókn að vefjum og hefur www.vf.is verið í hópi tuttugu mest sóttu vefja landsins undanfarin ár og verið meðal fimm stærstu fréttavefja landsins.
Þann 1. júní 2005 opnuðu Víkurfréttir formlega vefinn www.kylfingur.vf.is, sem er systurvefur www.vf.is. Um er að ræða sérvef um golfíþróttina. Þar eru birtar alla daga ársins innlendar og erlendar fréttir af golfíþróttinni. Víkurfréttir hafa samning við alþjóðlega frétta- og myndveitu um erlent efni á vefinn. Á þessum tveimur árum er kylfingur.is orðinn vinsælasti golfvefur landsins.

TÍMARIT VÍKURFRÉTTA


Víkurfréttir ehf. hófu útgáfu á Tímariti Víkurfrétta vorið 1999. Þar er á ferðinni glæsilegt tímarit sem tekur á mannlífi Suðurnesja á litskrúðugan og skemmtilegan hátt. Blaðið er að jafnaði 68 síður og hefur verið metsölutímarit á Suðurnesjum frá því að kom fyrst út. 
Blaðið er selt á öllum helstu blaðsölustöðum á Suðurnesjum, en einnig í lausasölu og áskrift. Auglýsingasíminn er 421 0000.

AVF – Auglýsingastofa Víkurfrétta


Víkurfréttir reka auglýsingastofuna AVF en hún sinnir hönnunarverkefnum frá a til ö, stærri sem smærri. Stofan sér um hönnun auglýsinga í miðla Víkurfrétta en tekur einnig að sér hönnun prentgripa fyrir aðra aðila. Meðal verkefna er einnig að sjá um fréttablöð og vefsíður.

REYNSLUMIKIÐ STARFSFÓLK


Starfsfólk Víkurfrétta á skrifstofum í Reykjanesbæ og Hafnarfirði er um tuttugu talsins. Fréttamenn VF eru alltaf á vaktinni enda sinna þeir fréttamennsku fyrir Fréttastofu Stöðvar 2 auk miðla VF en þeir sinna einnig fréttaljósmyndaþjónustu fyrir dagblöð og fleiri tímarit landsins.

ISSN 1606-5255