Fréttir | 5. nóvember 2007 | 01:06:39
Glerblástur í Reykjanesbæ

Glerblástursverkstæði Iceglass opnaði formlega sl. laugardag, en það eru mæðginin Lárus Guðmundsson og Guðlaug Brynjarsdóttir sem reka verkstæðið, en þau ráku verkstæði í Danmörku um langt árabil. Verkstæði Iceglass er það fyrsta sinnar tegundar á landinu þar sem öll framleiðsla fer fram fyrir opnum dyrum og gestir og gangandi geta því fylgst með framleiðslunni.


Niðurhala