Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Ferðakaupstefnu frestað til október á næsta ári
Fimmtudagur 20. ágúst 2020 kl. 12:31

Ferðakaupstefnu frestað til október á næsta ári

Skipuleggjendur Vestnorden, NATA - The North Atlantic Tourism Association, hafa sent frá sér tilkynningu um að Vestnorden ferðakaupstefnan sem halda átti á Suðurnesjum 6.-8 október 2020 verði frestað til 5.-7. október 2021.

Í ljósi aðstæðna sem hafa skapast vegna Covid-19 og þeirrar óvissu sem fylgir er varða smitvarnir og ferðalög, þá var ekki annað í stöðunni en að aðlaga sig að því. Ferðakaupstefnunni hefur því verið frestað til næsta árs.

Verið er að undirbúa stafrænan viðburð í stað kaupstefnunnar þann 7. október og verður hann kynntur betur síðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024