Viðskipti

Heimsferðir neðar á Hafnargötuna
Fimmtudagur 13. febrúar 2003 kl. 15:41

Heimsferðir neðar á Hafnargötuna

Hjónin Eygló Þorsteinsdóttir og Geir Newman hafa verið athafnasöm á Suðurnesjum síðustu ár. Frá árinu 1985 hefur Geir verið umboðsmaður Sjóvá Almennra. Eygló hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1990 og í dag eru þau umboðsmenn Happdrættis Háskólans og SÍBS. Fyrir stuttu gerðust þau umboðsmenn ferðaskrifstofunnar Heimsferða og er því margháttuð þjónusta í boði að húsnæði fyrirtækisins að Hafnargötu 36.Hvað mættu margir í opnunina um síðustu helgi?
Það var þó nokkuð af fólki sem kom á sunnudaginn, bæði til að ná sér í sumarbæklinginn og líka til að bóka sína draumaferð.

Hvernig líst ykkur á að vera farin að starfa í ferðamannaiðnaðinum?
Okkur líst ágætlega á að bæta þessu við og teljum að þetta fari vel saman við aðra þjónustu sem við bjóðum. Ferðalög erlendis eru orðin snar þáttur í lífsmunstri fjölda manns. Fjölskyldan vill eyða fríinu saman og ekki spillir góða veðrið á suðrænum slóðum. Það er greinilegt að fólk skipuleggur sumarleyfið snemma og er oft búið að ákveðið sig þegar sumarleyfisbæklingarnir koma út.
Ferðalög eru bæði þroskandi og stuðla að andlegri og líkamlegri hvíld. Það er mikilvægt miðað við okkar daglega mynstur sem oft einkennist af hraða og streitu.

Bjóðið þið upp á allar ferðir sem Heimsferðir eru með?
Allar ferðir sem Heimsferðir bjóða uppá er hægt að fá afgreiddar hjá okkur.

Verðið þið með einhverjar sérstakar ferðir á boðstólum?
Þær ferðir sem mest er bókað í núna eru svokallaðar stjörnuferðir. Þar býðst 8000.- afsláttur á hverja bókun. Þetta tilboð gildir til 15.mars en gætu auðveldlega selst upp fyrr miðað við eftirspurnina núna.
Þeir staðir sem eru vinsælastir eins og er, eru Costa del sol og svo Ítalía. Einnig er mikið spurt um Mallorca og Benidorm.

Hvernig hafa viðbrögðin verið frá því þið opnuðuð?
Við höfum fengið mjög góð viðbrögð, enda erum við að bjóða góðar ferðir og á besta verðinu. Við hvetjum fólk til koma og kynna sér málið.

Eruð þið bjartsýn á framhaldið?
Það hefur verið góð aukning í sölu ferða hjá Heimsferðum sl.ár og ánægðir viðskiptamenn eru besta auglýsingin sem hægt er að fá.

VF-Ljósmynd: Geir Newman og Eygló Þorsteinsdóttir ásamt starfsmanni Heimsferða.