Viðskipti

Miðvikudagur 30. ágúst 2006 kl. 09:53

Metfjöldi ferðamanna í júlí

Samkvæmt upplýsingum á vef Ferðamálastofu sýna talningar Ferðamálastofu  á Keflavíkurflugvelli  að ferðamönnum til landsins heldur áfram að fjölga og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði en í júlí síðastliðnum. Þá fóru tæplega 67 þúsund erlendir ferðamenn um Leifsstöð og fjölgar um tæplega 1.700 manns á milli ára eða 2,6%.
Sé litið á helstu markaðssvæði í júlí þá stendur fjöldi Bandaríkjamanna og Breta nánast í stað á milli ára en nokkur fjölgun er frá Norðurlöndunum og Þýskalandi. Norðurlandabúar eru fjölmennastir, um 15.500 talsins, tæplega 9.000 frá Þýskalandi, 8.700 frá Bandaríkjunum og 8.000 frá Bretlandi. Alls eru gestir frá 15 löndum taldir sérstaklega en aðrir eru teknir saman sem ein heild og sem fyrr er talsverð fjölgun í þeirra hópi í júlí. Eins og fram hefur komið verður um næstu áramót farið að telja sérstaklega gesti frá fleiri löndum en nú er gert, m.a. frá Kína.

6,3% fjölgun frá áramótum
Frá áramótum og til júlíloka eru erlendir ferðamenn sem fóru um Leifsstöð 216 þúsund talsins og hefur fjölgað um 6,3% miðað við sama tíma í fyrra. Í töflunni hér að neðan má sjá hvernig þessir gestir skiptast á milli landa en undir liðnum “Talanaefni/Fjöldi ferðamanna” á vef Ferðamálastofu má nálgast heildarniðurstöður talninganna í einu Excel-skjali.

Undanfarin ár hafa ferðamenn í ágúst verið fleiri en í júlí og því ekki ólóklegt að þá verði nýtt met sett í fjölda gesta í einum mánuði. Jafnframt er vert að benda á að inn í þessum tölum eru ekki farþegar sem fara um aðra millilandaflugvelli hérlendis og þá eru ótaldir þeir ferðamenn sem koma með Norrænu og farþegar skemmtiferðaskipa sem hafa hér viðdvöl.

 

 

Frá áramótum til loka júlí

 

 

 

 

2005

2006

Mism.

%

Bandaríkin                   

32.265

33.756

1.491

4,6%

Bretland                     

35.102

36.479

1.377

3,9%

Danmörk                      

20.849

21.441

592

2,8%

Finnland                     

4.653

4.830

177

3,8%

Frakkland                    

11.864

12.069

205

1,7%

Holland                      

6.126

6.250

124

2,0%

Ítalía                       

3.857

3.923

66

1,7%

Japan                        

2.985

3.255

270

9,0%

Kanada                       

1.762

2.079

317

18,0%

Noregur                      

14.127

15.308

1.181

8,4%

Spánn                        

2.801

3.187

386

13,8%

Sviss                        

3.974

3.374

-600

-15,1%

Svíþjóð                       

15.072

14.859

-213

-1,4%

Þýskaland                    

20.043

20.473

430

2,1%

Önnur þjóðerni               

27.807

34.721

6.914

24,9%

Samtals:

203.287

216.004

12.717

6,3%