Tapa 12-14 milljónum á dag
Veltutap Fríhafnarinnar í Leifsstöð, og annarrar starfsemi þar, er áætlað um 12-14 milljónir króna fyrir hvern dag sem lokað hefur verið vegna eldgossins. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Farþegum sem fóru um Leifsstöð í apríl fækkaði um 22% frá sama tíma í fyrra.
Mynd: Gosaska þekur gróður undir Eyjafjöllum síðdegis í gær. Þegar gosaskan lokar Keflavíkurflugvelli kostar það Fríhöfnina 12-14 milljóna króna veltutap á dag. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson