Guðrún P. Ólafsdóttir ráðin bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga
Guðrún P. Ólafsdóttur verður bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. Ráðning hennar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sveitarfélagsins í gær og tekur formlega gildi eftir bæjarstjórnarfund í næstu viku. Guðrún hefur verið starfandi bæjarstjóri að undanförnu eftir að fyrrum bæjarstjóri lét af störfum. Hún hefur starfað hjá sveitarfélaginu síðan sumarið 2023 þegar hún var ráðin sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Guðrún starfaði áður við fjármála- og rekstrarstjórnun og í fjárfestingabankastarfsemi. Hún lauk M.sc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2012 og Cand.Oecon gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál árið 2002 frá sama skóla.
,,Ég þakka bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga það traust sem mér er sýnt með ráðningunni. Síðastliðið ár hef ég fengið að kynnast samfélaginu í Vogum sem er kyrrlátt og samheldið. Framundan eru spennandi verkefni, meðal annars við innviðauppbyggingu samhliða fólksfjölgun til að tryggja íbúum áfram góða þjónustu. Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs með bæjarfulltrúum, samstarfsfólki og íbúum í Sveitarfélaginu Vogum“
Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, lýsir ánægju með ráðningu Guðrúnar og bindur vonir við farsæla samvinnu hér eftir sem hingað til.