Fréttir

Kapp lagt á að verja Svartsengi
Laugardagur 23. nóvember 2024 kl. 17:54

Kapp lagt á að verja Svartsengi

Enn streymir hraun til vesturs og rennur það meðfram varnargörðum við Svartsengi og Bláa lónið og þykknar. Einnig rennur hraun til norðurs og austurs frá nyrstu og syðstu gígum. Hraunstraumar til vesturs eru að valda álagi á varnargarða og staðan er viðkvæm hvað varðar möguleg áhrif á innviði í og við Svartsengi vegna hraunflæðis.

Frá þessu greinir Veðurstofa Íslands á vef sínum í dag og þar kemur jafnfram fram að enn gjósi á þremur afmörkuðum svæðum á gossprungunni og er mesta virknin staðsett um miðbik hennar. Virknin hefur haldist nokkuð stöðug í nótt og það sem af er degi á heildina litið.

Viðreisn
Viðreisn

HS Veitur birtu síðdegis eftirfarandi færslu á Facebook-síðu sinni:

Eldgosið er stöðugt og hraun rennur meðfram varnargörðum sem liggja umhverfis Svartsengi og Bláa lónið. Eins og við er að búast við slíkar aðstæður hækkar hraungarðurinn og hefur hann nú náð hæð varnargarðanna á köflum. Almannavarnir hafa því virkjað næsta skref í vörnum sem felst í hækkun varnargarða og undirbúningi hraunkælingar við þá og er kælingin nú til reiðu.

Auk þess er unnið að því að byrgja þann hluta Njarðvíkuræðar sem liggur innan varnargarða með sama hætti og lögnin er varin fyrir utan varnargarða. Þær varnir hafa haldið eftir að hraun flæddi yfir lagnaleiðina sl fimmtudag utan garða. Vel er fylgst með ástandi lagnarinnar og allar mælingar benda til þess að hraunflæði hafi enn sem komið er ekki haft áhrif og afhendingargetan því óskert.

Eldgosið hefur því ekki haft teljandi áhrif á afhendingu á heitu vatni, köldu vatni eða rafmagni til sveitarfélaganna á Suðurnesjum og standa vonir til að svo verði áfram.

Í náttúruhamförum sem ógna innviðum er þó nauðsynlegt að vera við öllu búin. HS Veitur og HS Orka benda því viðskiptavinum á Suðurnesjum á að vera undir það búin að eldgosið gæti haft áhrif á afhendingu á heitu vatni. Minnum við á ábendingar HS Veitna í tengslum við mögulegt þjónusturof vegna náttúruhamfara sem eru aðgengilegar hér.

Heitavatnsnotkun á Suðurnesjum hefur aldrei verið jafn mikil á þessum árstíma og hún er nú, meðal annars vegna þess hvað byggðin hefur stækkað. Við þær aðstæður sem nú eru í Svartsengi er heitavatnsframleiðslan undir miklu álagi. Eru notendur hvattir til að fara sparlega með heita vatnið og gæta þess að halda varma inn í húsum. Það mun auk þess koma sér vel ef aðstæður breytast og heitt vatn hættir að berast frá Svartsengi.
Tilkynningin verður uppfærð ef breytingar verða á stöðu veitukerfa vegna eldgossins.