Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Landris hafið á ný í Svartsengi
Ísak Finnbogason, ljósmyndari Víkurfrétta, flaug yfir eldströðvarnar í gær, 5. desember.
Föstudagur 6. desember 2024 kl. 15:45

Landris hafið á ný í Svartsengi

Virkni í eldgosinu hefur farið hægt minnkandi síðustu daga. Minni virkni er sýnileg á vefmyndavélum og gosórói hefur farið hægt minnkandi þegar horft er til síðustu daga. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.

Hraunflæði hefur haldið sig innan eldri hraunbreiðunnar og er lítið sem ekkert framskrið greinilegt utan hennar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nýjustu aflögunargögn benda til þess að landris sé hafið á ný í Svartsengi. GPS mælingar sýna hæga breytingu upp á við á nokkrum stöðvum. Nýjustu gervitunglamyndir frá ICEYE staðfesta þau merki sem berast frá GPS mælum.

ICEYE06122024

Gervitunglamynd sem sýnir LOS (Line Of Sight) færslu á tímabilinu 30. nóvember til 4. desember 2024. Myndin er unnin úr gervitunglagögnum frá ICEYE (InSAR). Rauða svæðið sýnir landris (~1 cm).

Gasmengun áfram varasöm þrátt fyrir minni virkni

Þrátt fyrir minni virkni í eldgosinu er gasmengun áfram til staðar. Gasdreifingarspá gerir ráð fyrir hæg breytilegri átt í dag og því ólíklegt að mikillar gasmengunar verði vart á svæðinu í dag.

Um helgina er spáð norðan átt á laugardag sem breytist svo í sunnan átt á sunnudag. Því má búast við að gas geti mælst í Vogum á sunnudag.

Þeir sem eru á ferð á svæðinu eru hvattir til að fylgjast með gasdreifingarspá Veðurstofunnar og leiðbeiningum varðandi gasmengun á loftgadi.is

Hættumat óbreytt

Hættumat er óbreytt þangað til 10. desember, nema að einhverjar breytingar verða.