Þakið er enn á sínum stað
Þegar veður eru válynd hugsa margir í Garði til ástandsins á þaki á íbúðarhúsinu Vík við Rafnkelsstaðarveg.
Nú þegar vindmesta lægð vetrarins hefur náð hámarki hér á Suðurnesjum þá er það að frétta úr Garðinum að þakið á Vík er enn á sínum stað, þ.e. það sem eftir er af þakinu. Engin breyting varð á þakinu eftir veður morgunsins.
Meðfylgjandi mynd var tekin nú áðan.