Minningar morgundagsins í Listasafni Reykjanesbæjar
12. mars – 24. apríl 2022
Listasafn Reykjanesbæjar býður í annað sinn meistaranemum á fyrsta ári í sýningagerð við Listaháskóla Íslands að stýra sýningu í safninu. Minningar morgundagsins verður opnuð laugardaginn 12. mars og stendur til sunnudagsins 24. apríl 2022.
Sýningarstjórar eru Iona Poldervaart, Sara Blöndal og Sunna Dagsdóttir. Sex listamenn taka þátt í sýningunni; Elnaz Mansouri, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Sarah Degenhardt, Sarah Finkle, Victoria Björk og Vikram Pradhan.
Sýningin Minningar morgundagsins er hópsýning sem setur fókusinn á framtíðina og tengslin við sögur, umhverfi og drauma okkar.
Minningar eru sögur fortíðarinnar og á hverjum degi sköpum við frásagnir sem breytast í minningar framtíðarinnar. Tækniframfarir síðustu ára hafa nú í enn meiri mæli áhrif á daglegt líf. Með sýningunni vilja sýningarstjórarnir varpa ljósi á það hvernig lífið gæti orðið í framtíðinni og velta vöngum yfir möguleikum nýrrar heimsmyndar. Þær varpa fram spurningum um tilgang allsnægta, mennskunnar og hvað teljist til lífs; höfum við stjórn á framtíð okkar - draumum okkar - nútímanum? Hvernig mótum við frásagnir okkar og hvernig tökumst við á við umhverfið? Hvernig upplifum við tíma og rúm? Getum við deilt rými til að dreyma? Hvernig munum við búa á morgun og hvers munum við minnast þegar við lítum til baka í framtíðinni?
Meistaranám í sýningagerð er ný námsleið í myndlistardeild Listaháskóla Íslands sem kennsla hófst við haustið 2020. Þar er litið á sýningagerð sem sjálfstæða listgrein á breiðum vettvangi myndlistar sem einskorðast ekki þó ekki við eitt svið lista. Hanna Styrmisdóttir er prófessor við námsleiðina.