Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Pistlar

Búast má við mokveiði í mars
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 4. mars 2022 kl. 07:11

Búast má við mokveiði í mars

Þá er febrúarmánuðurinn á enda kominn og framundan er mars. Marsmánuður hefur í gegnum tíðina verið sá mánuður sem veiði hefur verið langmest í veiðarfæri hjá bátunum sem róa frá Suðurnesjum – og miðað við hversu góð veiði var þessa daga sem gaf á sjóinn í janúar og febrúar má búast við mokveiði í mars.

Reyndar er svo til búin að vera haugabræla frá því síðasti pistill var skrifaður og bátar lítið sem ekkert komist á sjóinn. Þó voru nokkrir bátar sem skutust út, t.d var Óli á Stað með 10,2 tonn í einni löndun, Sandfell SU tæp 20 tonn í tveimur og Hafrafell SU með um 14 tonn í tveimur, allir að landa í Sandgerði. Kristján HF með um 12 tonn í einni, líka í Sandgerði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í Grindavík hafa minni bátarnir ekkert komist út síðan 18. febrúar en mikið brim hefur verið utan við Grindavík og innsiglinginn verður ófær fyrir minni bátanna í svoleiðis aðstæðum. Aftur á móti þá lokast innsiglinginn til Sandgerðis ekki eins oft því langt sker, sem gengur út frá Jórukleif og alveg fram fyrir höfnina, brýtur ölduna þannig að innsiglinginn sjálf í Sandgerði er iðulega fær þótt að haugasjór sér utan við skerið.Þrátt fyrir að bátarnir hafa ekki mikið komist á sjóinn þá hafa ansi margir togbátar verið á veiðum beint utan við Sandgerði, t.d. Frosti ÞH, Sturla GK, Farsæll SH, Sigurborg SH, Pálína Þórunn GK og Sóley Sigurjóns GK svo dæmi séu tekin. Sturla GK og Pálína Þórunn GK hafa landað í sinni heimahöfn, Sturla GK í Grindavík og var kominn með 404 tonn í sjö löndunum í febrúar og mest allt af því var veitt utan við Sandgerði. Pálína Þórunn GK er með 166 tonn í fjórum löndunum og það er líka veitt þarna utan við Sandgerði. 

Hjá dragnótabátunum hefur Kalli á Maggý VE verið sá sem oftast hefur farið út en báturinn hefur landað alls 82 tonnum í fjórtán róðrum. Maggý VE og Steinunn SH frá Ólafsvík eru þeir dragnótabátar sem hafa farið í flesta róðrana núna í febrúar, fjórtán talsins hvor bátur.

Reyndar er þetta frekar dapurt og ef horft er á hina bátanna þá er t.d. Sigurfari GK með 81 tonn í tíu og er með næstflesta róðra á eftir hinum tveimur. Siggi Bjarna GK 56 tonn í níu, Benni Sæm GK 49 tonn í átta og Aðalbjörg RE 28 tonn í sjö. Eins og sést þá eru róðrarnir mjög fáir og veður skipar þarna ansi mikinn þátt í sjósókn bátanna.

Hjá netabátunum eru stóru bátarnir Erling KE og Grímsnes GK þeir sem oftast hafa róið enda geta þeir verið á sjó í þessum sjógangi sem er búið að vera. Erling KE er með 202 tonn í fjórtán róðrum og Grímsnes GK 120 tonn í níu. Aðrir eru Maron GK með 53 tonn í átta, Halldór Afi GK 11 tonn í átta, Bergvík KE 8,8 tonn í níu og Sunna Líf GK 1,6 tonn í þremur.

Stóru línubátarnir ná að veiða í þessum brælum og hefur verið mokveiði hjá þeim. Páll Jónsson GK er með 492 tonn í fjórum róðrum og mest 144 tonn í einni löndun. Fjölnir GK 449 tonn í fjórum og mest 122 tonn, Valdimar GK 310 tonn í fjórum og mest 115 tonn og Sighvatur GK 294 tonn í tveimur og mest 152 tonn. Sighvatur GK fór ekki til veiða fyrr en um 9. febrúar en Covid-smit kom upp hjá áhöfn bátsins í lok janúar og var báturinn stopp í um tvær vikur út af því. Hrafn GK 229 tonn í þremur og mest 123 tonn.

Af minni línubátunum þá er t.d. Vésteinn GK með 153 tonn í tólf, landað fyrir austan, í Þorlákshöfn og Grindavík. Gísli Súrsson GK 156 tonn í fjórtán, allt landað í Ólafsvík, Margrét GK 130 tonn í þrettán, landað í Sandgerði, Sævík GK 128 tonn í þrettán, landað í Grindavík og Þorlákshöfn, Óli á Stað GK 120 tonn í tólf, í Grindavík og Sandgerði. Reyndar má geta þess að Óli á Stað GK færði sig um miðjan febrúar yfir til Sandgerðis og veiddi ansi vel þar því að aflinn var 81 tonn í sjö róðrum og komst tvisvar yfir fimmtán tonn í róðri þar. Daðey GK 115 tonn í þrettán, líka í Sandgerði og Grindavík, Geirfugl GK 94 tonn í þrettán. Þessi bátur lenti í mokveiði frá Sandgerði því báturinn þurfi að tvílanda einn daginn. Fór út með um 16.000 króka, sem eru um 38 balar, og kom fyrst með um tíu tonn í land eftir að hafa dregið rúmlega 10.000 króka. Fór aftur út og dró restina og var samtals með um 16,6 tonn. Þetta gerir um 436 kg á bala. Að ná yfir 400 kg á bala er nú bara mokveiði.