Delta hefur daglegt flug milli Boston og KEF sumarið 2027
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar þann 12. apríl 2027. Flugið verður í boði til 30. október 2027 og styrkir enn frekar tengingar Íslands við Norður-Ameríku.
Boston er ein mikilvægasta tengimiðstöð Delta Air Lines fyrir flug yfir Atlantshafið og mun nýja leiðin skapa enn fjölbreyttari ferðamöguleika fyrir farþega sem ferðast milli Íslands og Bandaríkjanna. Borgin er jafnframt ein af lykilgáttum flugfélagsins fyrir áframhaldandi tengingar til fjölmargra áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin.
Delta hóf flug til Íslands árið 2011 með beinu flugi milli New York og Keflavíkur. Nýja leiðin frá Boston byggir því á langri sögu félagsins á íslenskum markaði og eykur enn frekar aðgengi ferðamanna frá Bandaríkjunum að Íslandi.
„Við fögnum því mjög að Delta Air Lines bæti við daglegu flugi frá Boston til Keflavíkur. Boston-svæðið er einn mikilvægasti markaður okkar í Norður-Ameríku og með þessari nýju tengingu opnast enn fleiri möguleikar fyrir farþega til að ferðast til og frá Íslandi. Flugið styrkir tengingar Íslands við Bandaríkin og eykur samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar tengimiðstöðvar,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli.





