Hafdís Sif Þórarinsdóttir, nemandi í níunda bekk í Sandgerðisskóla kom í stutta starfskynningu á Víkurfréttir.
Hún tók viðtöl við tvo nemendur í skólanum en auk þess fékk hún stutta kynningu á starfsemi Víkurfrétta. Viðtölin verða einnig í Suðurnesjamagasíni vikunnar.