Sunnudagur 10. nóvember 2024 kl. 10:11

10. nóvember - Grindavíkurþáttur Suðurnesjamagasíns

Í dag, 10. nóvember, er liðið eitt ár frá miklum náttúruhamförum í Grindavík sem leiddu til þess að bærinn var rýmdur. Í dag, ári síðar, er framtíðin enn í óvissu. Suðurnesjamagasín Víkurfrétta fór til Grindavíkur á föstudaginn og ræddi við Fannar Jónasson bæjarstjóra um hvað á dagana hefur drifið síðasta árið, stöðuna í dag og framtíðarhorfur.

Í þættinum er einnig rætt við nokkra Grindvíkinga í Kvikunni í Grindavík og birtar glefsur úr safni Víkurfrétta sem endurspegla atburðinn 10. nóvember í fyrra og dagana sem fylgdu í kjölfarið.